UM OKKUR

FX PROTECT er vörumerki sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á vörum sem ætlaðar eru til detailing. Við bjóðum upp á lausnir og vandaðar vörur fyrir áhugasama og fagmenn með fjölbreyttu úrvali í hlífðarhúðun, umhirðu hreinsivörum og fylgihlutum.

Vörurnar frá FX PROTECT eru þróaðar sem gæðavörur og eru þar af leiðandi gerðar miklar kröfur til vísindamanna vörumerkisins. Birkir Guðsteinsson Framkvæmdastjóri FX PROTECT á Íslandi leggur mikla áherslu á að veita persónulega og skjóta þjónustu til viðskiptavina vörumerkisins.

,,Það er keppnismál að viðskiptavinir okkar hafi allar þær vörur sem þeir þurfa til þess að klára sín verk með trompi” – Birkir

Ekki hver sem er getur verslað 5 ára keramikhúð FX PROTECT, sem er talin ein besta uppfinning í keramikhúð bransanum. Einungis FX PROTECT Certified Detailer hefur leyfi til þess að kaupa húðina frá umboðsaðila landsins. Til þess að gerast viðurkenndur detailer hjá FX PROTECT, þarf að sækja námskeið sem við höldum ár hvert.