Fyrirtækið

Markmið Buddy Car Rental ehf. kt. 460616-0690 einnig þekkt sem FX PROTECT er að veita kúnnum okkar gæða vörur á frábæru verði. Ef viðskiptavinur óskar eftir að skila vöru er reynt að verða við því, sé þess nokkur kostur. Skilyrði er að varan sé í upprunalegu ástandi, ónotuð og ennþá í umbúðunum. Að þessum skilyrðum uppfylltum og gegn framvísun kaupnótu er viðskiptavini heimilt að fá inneignarnótu, skipta í aðra vöru eða fá endurgreiðslu séu 14 dagar eða minna liðnir frá kaupdegi.

FX PROTECT áskilur sér rétt á að hætta við pantanir, þar með talið, en þó ekki tæmandi talið, vegna rangra verðupplýsinga, skekkju í birgðarstöðu eða annara atvika. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. FX PROTECT ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá FX PROTECT og til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram, ef senda á vöruna í pósti. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Valfrjálst er hvort pakkinn er sendur á næsta pósthús við þitt húsnúmer eða beint heim að dyrum. Sendingarkostnaður er 1.490 kr. ef vara er send á pósthús, en 1.990 kr. beint að dyrum.

Pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag og sendar á pósthús alla virka daga.
Pantanir sem koma eftir kl 16:00 á föstudegi verður afgreidd á mánudegi.
Afhentingartími fer eftir afhentingaráætlun Íslandspósts.

Að skila og skipta vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef farið er fram á endurgreiðslu, þá er hún framkvæmd eftir að varan er móttekin.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn viðskiptavini að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að krefjast endurgreiðslu. Að öðru leiti vísast til laga um neytendasamninga nr. 16/2016 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp  í tengslum við viðskiptin. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy: All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Governing law/ Jurisdiction: These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.