Það finnst lang flestum gaman að eiga hreinan bíl með gott lakk. Vel með farinn bíll er bíll sem er reglulega þjónustaður og þrifinn reglulega með vönduðum vörum sem koma í veg fyrir mikla rispumyndun. Þegar þú ferð í það að velja vörur fyrir bílinn þinn er mikilvægt að hafa eftirfarandi þætti í huga.

1. Efni sem hreinsa en eyðileggja ekki

Hvort sem þú ert á bíl sem er með keramíkhúð eða ekki þá viltu notast við efni sem skemma hvorki húðina eða lakkið sjálft, eins og CAR SHAMPOO bílasápan frá FX Protect. Einnig er algengt að hver og einn vilji velja sér vöru sem er ódýrust en þá má hafa í huga að virknin og gæðin verði ekki jafn gæfuleg fyrir bifreiðina. Svo er mjög mikilvægt að hreinsa lakk og felgur áður með t.d. IRON REMOVER járnhreinsinum til að koma í veg fyrir rispumyndun og losa járn efnin sem hafa náð festu við lakkið.

2. Efni sem gera innréttinguna betri

Leður, tau eða plast. Allt er þetta hluti af innréttinguni og það er mikilvægt að vera með efni sem bæta hana og hreinsa frekar en nota efni sem til langs tíma skemma innréttinguna. Efni sem gott væri að nota á t.d. alla plastfleti, innréttingar í hurðum og annað er nýji INTERIOR DETAILERINN okkar. Hann hreinsar, bætir og er vatnsfælandi (sem þýðir að það minnki líkurnar á að sykraðir drykkir sem dæmi ná mikilli festu í innréttinguni. Svo er alltaf sterkur leikur að nota INTERIOR DRESSINGUNA fyrir glansandi mælaborð með ótrúlega vel lyktandi ilm.

Erum einnig með efni fyrir sætin hreinsiefni, næringu og coat fyrir leður. Og hið vatnsfælandi FABRIC CARE fyrir tauið.

3. Efni sem vernda og hreinsa dekkin

Það er mikilvægt að vera með hrein og glansandi dekk. Ekki bara fyrir útlitið sem gerir okkur ánægða. Einnig vegna þess að í vetrarlandi eins og Íslandi getur verið mikilvægt að vera með efni á dekkjum sem eru meira fráhrindandi til að ná betra gripi með dekkjunum. Vörur sem hægt er að nota til þess að viðhalda þessu er TYRE AND RUBBER CLEANER og TYRE AND RUBBER PROTECTION

4. Efni sem verndar lakkið

Þetta er mögulega það mikilvægasta. Gott að vera með efni sem virkar hratt er einfalt að nota. SILKY DETAILERINN er mjög góð vara sem hægt er að úða yfir blautann eð þurrann bílinn og þurrka strax af. Efnið virkar strax. Á hann er þá komin vörn og vatnsfælandi húð sem er á bílnum í góðann tíma. ❤️

Share

Post comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *