Það er okkur mikil ánægja að kynna ykkur að Pólska vörumerkið FX PROTECT er komið á klakann. FX PROTECT sérhæfir sig í nýstárlegri þróun á hreinsiefnum og keramikhúðun (ceramic coat) fyrir bíla. Algengt er að vörurnar frá FX séu taldar lúxusvörur og gæðamerki í hreinsiefnum bifreiða.

Með tilkomu vörumerkisins á íslenskan markað er loksins komin alvöru og samkeppnishæf vara sem svíkur ekki notendur. Vöruúrvalið er breytt og er opið fyrir öllum að kaupa allt frá leðurbursta til keramikhúðarinnar Evolution coating 9H.

Evolution Coating 9H

Fylgjum eftir háum gæðastöðlum

Sem heildsöluaðilar vörunar þurfum við að fylgja eftir mjög háum gæðastöðlum vörumerkisins. þ.e.a.s. við höfum ekki heimild til þess að selja hverjum sem er okkar vinsælustu, allra sterkustu og endingargóðu keramikhúð B7 BASE + F5 FINISH. Einungis viðurkenndir FX PROTECT detailerar fá heimild til kaupa á efninu hjá okkur og bera það á. Hægt er að gerast viðurkenndur aðili með því að sækja námskeið á okkar vegum.

Eins og staðan er í dag eru aðeins tvö fyrirtæki sem hafa heimild til þess að kalla sig FX PROTECT viðurkenndir aðilar og bera húðina á bíla. Þeim mun fara fjölgandi, en það mun gerast hægt og valið verður vandað. Þar af leiðandi geta viðskiptavinir vörumerkisins treyst á gæði vörunar og virkni hennar.

Reksturinn á Íslandi

Við erum ört vaxandi fyrirtæki með tvo starfsmenn í vinnu eins og staðan er í dag. Framkvæmdastjóri og Gæðastjóri. Framkvæmdastjóri er yfirmaður sölu og markaðsmála á meðan gæðastjórinn er yfirmaður gæðaeftirlits og vinnuferla vörunar.

Þetta er spennandi verkefni og við hlökkum til að kynna fyrir ykkur eitt besta evrópska vörumerkið fyri hreinsiefni bíla hér heima á klakanum.

– Birkir Guðsteinsson
Framkvæmdastjóri
birkir@fxprotect.is

Share

Post comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *