Frá því að fyrsta sending á FX Protect kom til landsins hefur það náð gríðarlega miklum vinsældum og staðist gæðakröfur kröfuharðra Porsche eigenda. Bílabúð Benna sem er umboðsaðili fyrir Porsche á Íslandi, sérhæfir sig í ásetningum keramíkhúðarinnar frá FX Protect.

Í góðu samstarfi við Bílabúð Benna hefur FX Protect nú verið borið á yfir um 30 Porsche bíla á Íslandi. Enda um mjög góðar vörur að ræða. Hægt er að velja á milli efna sem endast frá 1 ári í allt að 5 ár. Okkar allra vinsælasta vara Hypernity Coat endist í allt að 5 ár og er með sjálflæknandi eiginleika.

Sjálflæknandi eiginleiki

Hvað er sjálflæknandi eiginleiki? Jú það er þegar litlar örrispur myndast á bílnum er hægt að taka upp t.d hárblásarann og blása á svæðið þar sem örrispur hafa myndast og þær hverfa hratt og örugglega. Þetta er það allra heitasta á markaðnum í dag.

Mikið úrval

FX Protect er jú fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á keramíkhúð og allskyns verndarhúð á sæti, gler og felgur. Verndarhúðin virkar sem vatnsfælandi efni og verndar gegn sólargeislum og upplitun.

Þar á meðal má nefna eftirfarand:

Lúxusvara á lúxusbíla

Það er ekki spurning að FX Protect er sannkölluð lúxusvara og tilvalin á allar tegundir af bílum og lúxusbílum.

Með því að láta keramíkhúða bílinn þinn hjá sérfræðingum fylgir alltaf eitthver ábyrgð og eru ábyrgðarskilmálar hjá hverjum ásetningaraðila mismunandi. Með hverri ásetningu fylgir ábyrgðarskírteini.

Share

Post comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *