Við hjá FX Protect á Íslandi erum í leit að endursöluaðilum á Íslandi. Endursöluaðili FX Protect verður að vera í rekstri með verslun, bílaþjónustu eða bæði. Það er mikilvægt að Endursöluaðilar FX Protect geri sér grein fyrir gæðunum sem fylgja merkinu. Merkið er ört vaxandi hér á landi og því mikilvægt að finna góða endursöluaðila sem koma vörunum almennilega á framfæri.

FX Protect er vörumerki sem sérhæfir sig í framleiðslu á detailing bílahreinsivörum og búnaði. Vöruúrvalið stækkar ört og er þetta þar af leiðandi mjög spennandi verkefni fyrir rétta aðila. Sápur, hreinsiefni, glansefni og keramíkhúð er aðeins lítill hluti af þeim vörum sem FX Protect er með.

Vörurnar eru í flottum söluvænum umbúðum og eru vinsældir FX Protect nú þegar farnar að segja til sín og er þetta þar af leiðandi mjög góð viðbót við flottan rekstur.

Við leggjum ríka áherslu á að finna endursöluaðila í Reykjavík, Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum og Höfn. En erum opnir fyrir öllum umsóknum.

Ekki hika við að sækja um að gerast endursöluaðili og útskýrðu frekar afhverju við eigum að velja þig sem endursöluaðila vörumerkisins.

    Share

    Post comment

    Your email address will not be published. Required fields are marked *